Lífið

Birgitta flutt heim

Birgitta Haukdal
Birgitta Haukdal Vísir/Anton
Söngkonan Birgitta Haukdal er flutt aftur heim til Íslands eftir að hafa verið búsett á Spáni undanfarin þrjú ár. Birgitta bjó þar ásamt eiginmanni sínum, Benedikt Einarssyni, og syni þeirra.

Benedikt var þar í MBA-námi en Birgitta lagði stund á spænskunám í háskóla í Barcelona meðan á dvöl þeirra stóð. „Ég er flutt aftur til Íslands og elska það, fyrir utan veðrið,“ sagði Birgitta á Facebook-síðu sinni í tilefni flutninganna.

Birgitta hefur um árabil verið ein þekktasta söngkona landsins og mun hún meðal annars ætla að starfa við söngkennslu nú þegar hún er flutt aftur heim. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×