Innlent

Birgitta: „Spillingin flæðir upp á yfirborðið í algerri síbylju“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata. Vísir/Stefán
Birgitta Jónsdóttir Pírati sagði að langtímahugsun og samlennd ættu undir högg að sækja vegna þess spillingar og áreitis. Við blasi flókin og ógnvænleg heimsmynd þar sem öfgar og populismi væru orðin yfirþyrmandi veruleiki sem ógnaði tilveru allra.

Í ræðu Birgittu í eldhúsdagsumræðum Alþingis sagði hún Pírata hafa áunnið sér mikið traust meðal þjóðarinnar sem komið hafi þeim á óvart í fyrstu. Flokkurinn þurfi að vera undir það búinn að takast á við meiri ábyrgð en stofnendur hans hafi gert sér í hugarlund í fyrstu.

„Það traust sem okkur hefur verið sýnt í skoðanakönnunum kallar á auðmýkt og mikla vinnu til að sýna í verki að það sé hægt að breyta samfélagsgerð okkar til langframa í góðri sátt við þjóðina. Það er hægt með raunsæum kerfisbreytinum, þar sem úrelt, flókin og oft mannfjandsamleg kerfi verða sett til hliðar, með nútímalegri stjórnarháttum,“ sagði Birgitta.

Nefndi hún að gott gæti verið fyrir flokka að að gera með sér samkomulag um stjórnarsáttmála fyrir kosningar þannig að fyrir lægu drög að málefnum sem þeir flokkar myndu leggja áherslu mynduðu þeir ríkisstjórn.

„þá myndi það breyta stjórnmálunum til langtíma og verða vonandi til þess að fólk fái á ný aukið traust á Alþingi. Því þá lægu málamiðlanir fyrir fyrirfram, og þessi dæmigerðu vonbrigði nánast strax eftir kosningar fyrirbyggðar,“ sagði Birgitta en slík nálgun kallaði hins vegar á raunsæi kjósenda og ekki væri hægt að breyta öllu á einu bretti.

Sagði hún að Píratar hefðu fimm helstu markmið fyrir næsta kjörtímabil. Uppfæra Ísland með nýrri stjórnarskrá, tryggja réttláta dreifingu arðs af auðlindum, endurreisa gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu, efla aðkomu almennings að ákvörðunartöku og endurvekja traust og tækla spillingu.

Í þeirri vinnu hafi Píratar greint hvar mest aðkallandi breytingar þurfa að eiga sér stað svo að hægt sé að tryggja velferð allra samfélagshópa.

„Við erum rík þjóð og því er það algerlega óásættanlegt hve margir lifa við fátækt og óvissu um velferð sína. Við viljum finna lausnir sem eru ekki bara plástrar heldur lausnir sem fara í snarrótina á samfélaginu okkar til að fyrirbyggja endalaust rugl og hringl með þau réttindi sem fólk á að geta gengið að án þess að rekast stöðugt á veggi og ranglæti,“ sagði Birgitta.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×