Golf

Birgir Leifur: Unaðsleg tilfinning

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson Mynd/GSÍ
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi með frábærum lokahring á Íslandsmótinu á Jaðarsvelli á Akureyri.

Birgir Leifur kláraði hringina fjóra á 276 höggum eða átta höggum undir pari en hann lék fjórða hringinn á fimm höggum undir pari.

„Tilfinning er bara unaðsleg og kemur skemmtilega á óvart með góðum hring í lokin. Ég setti mér smá markmið að ná níu undir pari og eiga þá möguleika. Sem betur fer dugði að vera átta höggum undir pari," sagði Birgir Leifur Hafþórsson í samtali við Jón Júlíus Karlsson í útsendingu Rúv frá mótinu.

„Þetta var mjög góður hringur hjá mér. Hann var mjög stöðugur. Það var lítið í gangi á fyrri níu holunum en svo fann ég gamla brellu úr bókinni. Ég breytti aðeins hjá mér í púttunum og það snarvirkaði. Það runnu niður nokkur pútt á seinni níu og þá leið mér allt í einu miklu betur," sagði Birgir Leifur.

Sjá einnig:Birgir Leifur Íslandsmeistari í sjöunda sinn | Nú sá sigursælasti frá upphafi

Hann var sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil sinn og er orðinn sigursælasti kylfingur Íslandsmóts karla frá upphafi.

„Ég setti mér markmið fyrir nokkrum árum þegar ég sá að ég átti tækifæri á því að ná þessu. Það er gaman að ná markmiðum. Það er yndisleg tilfinning þegar maður setur sér markmið og nær þeim. Þetta er góður dagur," sagði Birgir. En á þá ekki að bæta við fleirum á næstu árum.

„Tíminn verður að leiða það í ljós. Ég ætla að njóta þessa titils og sjá svo bara til," sagði Birgir Leifur.


Tengdar fréttir

Sögubækurnar bíða Birgis Leifs

Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×