Golf

Birgir Leifur og nýkrýndir Íslandsmeistarar keppa í Einvíginu á Nesinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson tekur þátt í ár.
Birgir Leifur Hafþórsson tekur þátt í ár. vísir/daníel
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 19. skipti á Nesvellinum mánudaginn 3. ágúst nk.  

Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins  boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BUGL (Barna- og unglingageðdeild Landspítalans).

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða.  

Í ár er það BUGL, Barna- og unglingadeild  Landspítalans, sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en BUGL sérhæfir sig í greiningu og meðferð á geðröskunum barna og unglinga með það að leiðarljósi að stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og fjölskyldna þeirra.

Þátttakendur 2015:

Aron Snær Júlíusson GKG, klúbbmeistari GKG 2015

Birgir Leifur Hafþórsson GKG, atvinnumaður og margfaldur Íslandsmeistari

Björgvin Sigurbergsson GK, margfaldur Íslandsmeistari

Helga Kristín Einarsdóttir NK, klúbbmeistari NK 2015

Hlynur Geir Hjartarson GOS, klúbbmeistari GOS 2015

Ólafur Björn Loftsson GKG, atvinnumaður og klúbbmeistari NK 2015

Ragnhildur Sigurðardóttir GR, klúbbmeistari GR 2015

Signý Arnórsdóttir GK, Íslandsmeistari 2015

Stefán Már Stefánsson GR, klúbbmeistari GR 2015

Þórður Rafn Gissurarson GR, Íslandsmeistari 2015

Sigurvegarar frá upphafi

1997: Björgvin Þorsteinsson (1)

1998: Ólöf María Jónsdóttir (1)

1999: Vilhjálmur Ingibergsson (1)

2000: Kristinn Árnason (1)

2001: Björgvin Sigurbergsson (1)

2002: Ólafur Már Sigurðsson (1)

2003: Ragnhildur Sigurðardóttir (1)

2004: Magnús Lárusson (1)

2005: Magnús Lárusson (2)

2006: Magnús Lárusson (3)

2007: Sigurpáll Geir Sveinsson (1)

2008: Heiðar Davíð Bragason (1)

2009: Björgvin Sigurbergsson (2)

2010: Birgir Leifur Hafþórsson (1)

2011: Nökkvi Gunnarsson (1)

2012: Þórður Rafn Gissurarson (1)

2013: Birgir Leifur Hafþórsson (2)

2014: Kristján Þór Einarsson (1)

Frétt frá golf.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×