Golf

Birgir Leifur með fjögurra högga forystu á Leirdalsvelli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson er í góðum málum í Leirdalnum.
Birgir Leifur Hafþórsson er í góðum málum í Leirdalnum. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari úr GKG, er með forystu í karlaflokki eftir tvo hringi á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á heimavelli hans í Leirdalnum.

Birgir Leifur spilaði á 68 höggum í dag, eða þremur höggum undir pari vallarins og er samtals á átta höggum undir pari eftir 36 holur.

Hann var tveimur höggum undir pari eftir fyrri níu holurnar í dag, en fékk svo tvöfaldan skolla á tíundu holu og var kominn á parið. En Birgir Leifur lét það ekki á sig fá heldur fékk fugla á holum númer 12, 14 og 15 og kláraði á þremur höggum undir pari.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Leirdalsvelli í dag og tók myndirnar sem sjá má hér að ofan og neðan.

Sigmundur Einar Másson spilaði vel í dag.vísir/daníel
Annar heimamaður, Sigmundur Einar Másson, sem varð Íslandsmeistari fyrir átta árum, er í öðru sæti á fjórum höggum undir pari eftir að hafa spilað völlinn á 67 höggum í dag.

Sigmundur Einar var á parinu í gær, en fékk fimm fugla og einn skolla dag og spilaði á fjórum höggum undir pari vallarins.

Þórður Rafn Gissurarson úr GR er þriðji á tveimur höggum undir pari, en hann spilaði á 69 höggum í dag eða tveimur höggum undir pari vallarins. Rétt eins og Sigmundur Einar var hann á parinu í gær.

Hinn 16 ára gamli Gísli Sveinbergsson úr GK náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta degi, en hann spilaði á 73 höggum í dag, eða tveimur höggum yfir pari. Hann er í fjórða sæti á einu höggi undir pari, sem er engu að síðu góður árangur hjá þessum gríðarlega efnilega kylfing.

Staða efstu manna:

1. Birgir Leifur Hafþórsson GKG -8 (-5 og -3)

2. Sigmundur Einar Másson GKG -4 (par og -4)

3. Þórður Rafn Gissurarson GR -2 (par og -2)

4. Gísli Sveinbergsson GK -1 (-3 og +2)

5. Kristján Þór Einarsson GKj par (+2 og -2)

Þórður Rafn Gissurarson er tveimur undir.vísir/daníel
Ungstirnið Gísli Sveinbergsson er enn í baráttunni.vísir/daníel

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×