Golf

Birgir Leifur í miklu basli á seinni níu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Birgir Leifur lenti i miklum vandræðum á seinni níu.
Birgir Leifur lenti i miklum vandræðum á seinni níu. Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, náði ekki að fylgja eftir góðu gengi á fyrstu níu holunum á Áskorendamótaröð Evrópu í Le Vaudreuil í Frakklandi í dag. Birgir Leifur fékk þrjá skolla og einn skramba og lauk leik á pari eftir góða spilamennsku á fyrri níu holum dagsins.

Birgir Leifur sem lauk leik á einu höggi undir pari í gær hóf leik á 10. holu í dag. Spilamennskan á fyrri níu holum dagsins var glæsileg en hann kom inn á fjórum höggum undir pari eftir að hafa lent í vandræðum á sömu holum í gær.

Birgir byrjaði seinni níu holur dagsins ágætlega en hann lék fyrstu fjóru holurnar á einu höggi yfir pari. Því fylgdu tvær slakar holur hjá Birgi sem lék þær á þremur höggum yfir pari. Skolli á átjándu holu gerði það að verkum að hann lék á einu höggi yfir pari í dag og á pari heilt yfir.

Óvíst er hvort hann nái í gegnum niðurskurðinn en eins og staðan er núna kemst Birgir Leifur ekki í gegn. Þurfa leikmenn að vera að minnsta kosti að vera einu höggi undir pari til þess að ná í gegn um niðurskurðinn en það er heill dagur eftir og gæti Birgir Leifur því náð að komast í gegn en útlitið er ekki gott.


Tengdar fréttir

Birgir Leifur: Tækifæri sem ég verð að nýta

Birgir Leifur, sem hefur borið sigur úr býtum undanfarin tvö ár í Íslandsmótinu í höggleik, tekur ekki þátt í ár. Þess í stað tekur hann þátt á sterku móti í Frakklandi eftir góðan árangur á Spáni um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×