Golf

Birgir Leifur í forystu á heimavelli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson stefnir að sjötta Íslandsmeistaratitlinum og þeim öðrum í röð.
Birgir Leifur Hafþórsson stefnir að sjötta Íslandsmeistaratitlinum og þeim öðrum í röð. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, er efstur eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu 2014 í höggleik sem fram fer á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, heimavelli Birgis Leifs.

Íslandsmeistarinn fimmfaldi var á parinu eftir fyrri níu holurnar þar sem hann fékk tvo fugla og tvo skolla.

Birgir Leifur datt í gang á síðustu holunum, en hann fékk örn á 14. holu og fylgdi því eftir með fuglum holum númer 15, 17 og 18. Fari svo að Birgir Leifur vinni mótið jafnar hann Björgvin Þorsteinsson og Úlfar Jónsson sem báðir hafa orðið Íslandmeistarar sex sinnum.

Í öðru sæti eftir þennan fyrsta hring er einn allra efnilegasti kylfingur landsins; Gísli Sveinbergsson, 16 ára gamall landsliðsmaður úr GK.

Gísli var jafn Birgi Leifi á fimm höggum undir pari fyrir 18. holuna, en þar fékk pilturinn ungi tvöfaldan skolla og er því tveimur höggum á eftir Íslandmeistaranum.

Þórður Rafn Gissurason, GR, og Sigmundur Einar Mássoon, GKG, eru jafnir í þriðja sæti en þeir léku hringinn í dag á 71 höggi eða á pari vallarins.

Staða efstu manna.mynd/skjáskjot af golf.is
Skorkort Birgis Leifs í dag.mynd/skjáskjot af golf.is
Skorkort Gísla Sveinbergssonar í dag.mynd/skjáskjot af golf.is

Tengdar fréttir

Valdís Þóra og Ragnhildur efstar eftir fyrsta dag

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbb Reykjavíkur eru jafnar í efsta sæti eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í höggleik sem fer fram um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×