Golf

Birgir Leifur í 5.-9. sæti á Spáni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birgir Leifur spilaði vel á Spáni.
Birgir Leifur spilaði vel á Spáni. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 5.–9. sæti á Áskorendamótinu sem fram fór á Kanaríeyjum á Spáni. Hann lék lokahringinn á fjórum höggum undir pari en samtals lék hann á 15 höggum undir pari.

Birgir lék vel á Spáni. Hann tapaði aðeins fjórum höggum á 72 holum en hann fékk alls 19 fugla á hringjunu fjórum.

Sigurvegarinn Rhys Davies var á -22 samtals en þetta er annar sigur hans á mótaröðinni.

Þetta er besti árangur Birgis á tímabilinu á Áskorendamótaröðinni. Hann hafði áður náð 8. sæti en þetta var fimmta mótið hjá Birgi á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni.

Með árangri sínum tryggði Birgir sér keppnisrétt á næsta móti sem fram fer í Frakklandi í næstu viku. Ekki er enn vitað hvort Birgir ætlar að leika á mótinu í Frakklandi eða reyna að verja Íslandsmeistaratitilinn á Garðavelli á Akranesi í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×