Golf

Birgir Leifur ekki í gegnum niðurskurðinn

Einar Sigurvinsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. getty
Birgir Leifur Hafþórsson er komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Barclays-mótinu, fyrstu mótinu í Áskorendamótaröðinni sem fram fer í Keníu. Birgir lék tvo hringi á mótinu, þann fyrsta á tveimur höggum yfir pari og seinni hringinn í dag á lék hann á pari.

Hann lék því hringina tvo á tveimur höggum yfir pari samanlagt en til að komast í gegnum niðurskurðinn þarf að leika á pari.

Á hringnum í dag lék Birgir tíu holur á pari, fékk fjóra fugla og fjóra skolla.

Axel Bóasson féll einnig út úr mótinu í dag á tveimur höggum en hann lék báða hringi sína á einu höggi yfir pari. Axel lék í dag tíu holur á pari, fékk fjóra fugla, þrjá skolla og og einn tvöfaldan skolla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×