Golf

Birgir Leifur aftur undir pari og kemst áfram á lokastigið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er kominn á lokastig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina eftir að spila undir pari á Alicante á Spáni fjórða daginn í röð.

Birgir Leifur var á átta höggum undir pari fyrir lokahringinn á 2. stigi úrtökumótsins í dag og spilaði síðasta hringinn á einu höggi undir pari.

Hann fór hringina fjóra á 275 höggum í heildina en níu höggum undir pari. Grunnvinnuna lagði hann á fyrsta hring þar sem hann spilaði frábærlega og var fimm höggum undir pari.

Gefið var út í morgun að 18 efstu kylfingarnir á 2. stigi komast áfram og er ljóst að Birgir fer áfram þrátt fyrir að allir kylfingar hafi ekki lokið leik.

Lokastigið fer einnig fram á Spáni og hefst á laugardaginn. Þetta er í tólfta sinn sem Birgir Leifur kemst þetta langt, en árið 2006 komst hann alla leið og komst einn á Evrópumótaröðina sem er sú næst sterkasta á eftir PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×