Viðskipti innlent

Bíógestum fjölgaði á landsbyggðinni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Á síðasta ári voru starfrækt 15 almenn kvikmyndahús með 41 sýningarsal á níu stöðum á landinu
Á síðasta ári voru starfrækt 15 almenn kvikmyndahús með 41 sýningarsal á níu stöðum á landinu Vísir/Daniel Rúnarsson
Aðsókn að kvikmyndahúsum hefur dregist saman um 16 prósent á hálfum áratug. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands sem tekur árlega saman upplýsingar um kvikmyndasýningar og starfsemi kvikmyndahúsa.

Þar segir að á síðasta ári nam aðsóknin tæplega 1,38 milljónum gesta samanborið við tæplega 1,65 milljónir gesta árið 2009. Gestir kvikmyndahúsanna hafa ekki verið færri en frá árinu 2005. Aðsókn síðasta árs var um 1,5 lægri en árið á undan, eða ríflega 21 þúsund gestum færri en árið áður. 

Aðsókn aukist á landsbyggðinni

Aðsókn síðasta árs jafngildir því að hver landsmaður hafi séð almenna kvikmyndasýningu ríflega fjórum sinnum á árinu. Aðsókn á íbúa í einstökum landshlutum er mest á höfuðborgarsvæði eða 5,5. Í þeim landshlutum þar sem kvikmyndahús voru starfandi á síðasta ári var aðsóknin minnst á íbúa á Vesturlandi og á Norðurlandi vestra, eða innan við ein kvikmyndahúsaferð á íbúa innan landshlutans.

Þróun aðsóknar í kvikmyndahús landsinsMYND/HAGSTOFA ÍSLANDS
Kvikmyndahúsagestum á höfuðborgarsvæðinu fækkað um 249 þúsund gesti, eða um tæp 18 prósent frá árinu 2009. Öðru gegnir með aðsókn að kvikmyndasýningum utan höfuðborgarsvæðisins, en á síðasta jókst aðsóknin um ríflega 18 þúsund, eftir nær samfelldan samdrátt í aðsókn nokkur undanfarin ár.

Andvirði seldra aðgöngumiða á landinu öllu á síðasta ári nam 1.487 milljónum króna samanborið við 1.530 milljónir árið á undan. Hlutdeild innlendra kvikmynda í andvirði greiddra miða nam 12 prósentum og hefur ekki verið hærri. Hlutur innlendra kvikmynda í aðsókn var tíu prósent  eða 138 þúsund sýningargestir. Bandarískar kvikmyndir höfðu langsamlega mesta hlutdeild á liðnu ári hvort heldur er miðað við aðsókn eða tekjur af miðasölu, eða 84 prósent og 82 prósent.

Á síðasta ári voru starfrækt 15 almenn kvikmyndahús með 41 sýningarsal á níu stöðum á landinu. Sætaframboð var 6.799 og sýningar á viku að meðaltali um 800.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×