Bílar

Bílverð lækkar hjá Bílabúð Benna

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Cayenne lækkar um 200.000 krónur.
Porsche Cayenne lækkar um 200.000 krónur.
Allir bílar Bílabúðar Benna hafa nú lækkað í verði í tilefni lækkunar virðisaukaskatts sem gengur í gildi nú um áramótin. Þá lækkar virðisaukaskattur úr 25,5% í 24%.

Þeir sem ganga frá pöntun á nýjum bíl hjá Bílabúð Benna á árinu fá bílana á lægra verðinu komi þeir til afhendingar á nýju ári.

Lækkun bílverðs hjá Benna vegna þessarar breytingar á söluskatti getur numið allt að 200.000 krónum og á það til dæmis við um Porsche Cayenne. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×