Innlent

Bílvelta við hringtorg í Hafnarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. vísir
Bílvelta varð við hringtorgið á gatnamótum Reykjanesbrautar, Lækjargötu og Setbergs í Hafnarfirði á rétt fyrir klukkan hálfsjö í kvöld. 

Lögregla fór á vettvang ásamt sjúkrabíl og slökkviliðsbíl.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var ökumaður bílsins fluttur með minniháttar meiðsl á sjúkrahús en hann komst að sjálfsdáðum út úr bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×