Innlent

Bílvelta í Öræfum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óskað hefur verið eftir aðstoð þyrlu LHG.
Óskað hefur verið eftir aðstoð þyrlu LHG. Vísir/Loftmyndir ehf.
Bílvelta varð við Sandfell í Öræfum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Tveir farþegar voru í bílnum en komust þeir úr honum af eigin rammleik.

Að sögn Odds Árnasonar yfirlögregluþjóns hefur Lögreglan á Suðurlandi óskað eftir því að þyrla Landhelgisgæslunnmar verði send á vettvang en að minnsta kosti annar þeirra sem var í bílnum sé með áverka.

Rétt sé því að þyrlan komi á vettvang enda langur vegur fyrir björgunaraðila að komast á staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×