Innlent

Bílvelta á Hringbraut

Samúel Karl Ólason skrifar
Sjúkrabíll fór á vettvang en enginn var fluttur til aðhlynningar.
Sjúkrabíll fór á vettvang en enginn var fluttur til aðhlynningar. Vísir/Vilhelm
Fólksbifreið valt á Hringbraut fyrr í kvöld og voru lögregla og slökkvilið kölluð á vettvang. Sjúkraflutningamenn fóru á vettvang samkvæmt Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en enginn var fluttur til aðhlynningar þar sem meiðsli voru ekki alvarleg.

Tveir voru í bílnum þegar ökumaður hans missti stjórn á honum.

Hringbrautinni var lokað um tíma vegna slyssins, en fljótt var opnað aftur fyrir umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×