Innlent

Kerra valt á Gullinbrú

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Gullinbrú um eittleytið í dag.
Frá Gullinbrú um eittleytið í dag. Vísir
Betur fór en á horfðist þegar kerra aftan í bíl valt á Gullinbrú í Reykjavík um eittleytið í dag. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd varð töluvert tjón þar sem kerra fór á hvolf.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu urðu ekki alvarleg slys á fólki. 

Bíllinn sem dró kerruna valt heila veltu og endaði á hjólunum hægra megin við veginn. Þrír voru í bílnum og sluppu með skrekkinn, en allir voru í beltum.

Frétt uppfærð klukkan 22:10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×