Bílar

Bílum að verðmæti 7 milljörðum króna bjargað úr strönduðu skipi

Finnur Thorlacius skrifar
Þann 3. janúar síðastliðinn sigldi skipstjóri stóru flutningaskipi í strand eftir að skipið hallaði svo mikið að það var að sökkva. Strandaði hann skipinu á sandrifi fyrir utan strendur Ermasundseyjarinnar Isle of Wight.

Með því bjargaði hann verðmætum farmi skipsins, en í því voru 1.400 bílar frá Land Rover, Jaguar og Mini að verðmæti 7 milljarða króna. Þessa dagana er verið að afferma bílana úr skipinu. Margir þeirra eru skemmdir og ljóst að sumir þeirra fara í niðurrif, en þó verður gert við flesta þeirri og enn aðrir eru stráheilir.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá bílana affermda og fara þar margir lúxusvagnarnir sem vafalaust sumir munu fagna að liggi ekki nú á hafsbotni. Skipið, sem er 51.000 tonn að þyngd og ógnarstórt skemmdist mjög lítið og verður fljótlega komið á flot aftur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×