Innlent

Biluð rakstrarvél skýrir gul hey

Haraldur Guðmundsson skrifar
 Í gær mátti sjá illa hirt svæði víða við Miklubraut og Hringbraut.
Í gær mátti sjá illa hirt svæði víða við Miklubraut og Hringbraut. Fréttablaðið/Pjetur
Hrúgur af slegnu grasi hafa síðustu daga verið skildar eftir á mörgum svæðum meðfram Miklubraut og Hringbraut. Á sumum stöðum höfðu hraukarnir legið óhreyfðir í talsverðan tíma og heyin farin að gulna.

Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar, segir ástæðuna fyrir þessu hiksti í umhirðunnni þá að rakstrarvél fyrirtækisins Garðlistar, sem sér um slátt við stofnbrautir borgarinnar, hafi bilað. Vélin sé nú komin í lag. Hreinsa átti heyin upp í gærkvöldi.

Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tók myndirnar í þessari frétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×