Formúla 1

Bílskúrinn: Raunir Rosberg á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Liðsmynd af Mercedes liðinu.
Liðsmynd af Mercedes liðinu. Vísir/Getty
Þýski Formúlu 1 kappaksturinn fór fram um síðustu helgi. Lewis Hamilton jók forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna upp í 19 stig með því að koma fyrstur í mark.

Hvernig fór Hamilton að því að vinna sjöttu keppnina í síðustu sjö tilraunum? Var Rosberg of grófur í að verjast Max Verstappen? Hver var ökumaður dagsins og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Hamilton var kampakátur með 25 stigin sín.Vísir/Getty
Hvernig var Hamilton fyrstur í mark?

Hamilton gerði það með því negla ræsinguna, stinga af og stjórna keppninni þaðan. Honum var raunar ekki ógnað fyrir utan tilraun Daniel Ricciardo á Red Bull til að reyna að ná honum.

Ricciardo gat þó ekkert gert til að ógna heimsmeistaranum Hamilton. Það hjálpaði Hamilton vissulega að Rosberg átti skelfilega ræsingu og féll niður í fjórða sæti. Strax á ráskaflanum. Rosberg sem hafði leitt allar æfingar og var á ráspól þurfti að horfa upp á liðsfélaga sinn auka forskotið í heimsmeistarakeppninni svo um munar.

Hamilton getur andað léttar eftir keppnina í Þýskalandi.Vísir/Getty
Hvað þýðir þægileg keppni fyrir Hamilton?

Þægileg er sennilega besta orðið til að lýsa keppni Hamilton eftir fyrstu hringina. Hann stjórnaði ferðinni gjörsamlega, í þægilegri fjarlægð og þurfti lítið að hafa fyrir því að vinna hana. Það er kannski djúpt í árina tekið að kalla Formúlu 1 keppni þægilega. Formúlu 1 keppnir verða þó varla þægilegri en þessi.

Þægileg keppni þýðir að Hamilton gat hagað akstrinum eftir þörfum. Hann gat sparað vélina og bílinn allan. Hann mun lenda í vandræðum seinna á tímabilinu. Hann fór full hratt í gegnum græjurnar sínar í upphafi tímabils og mun gjalda þess þegar á líður. Allar keppnir sem Hamilton getur stjórnað munu hjálpa honum að auka endingu íhlutanna. Líklega gera þær þó lítið annað en að veita honum aukinn gálgafrest.

Rosberg átti ekki góðan kappakstur á heimavelli. Hann þarf að taka sig saman í andlitiinu í sumarfríinu.Vísir/Getty
Var Rosberg ósanngjarn?

Lokaði Rosberg of harkalega á Verstappen? Dómarar keppninnar mátu atvikið þannig og dæmdu Rosberg með fimm sekúndna refsingu.

Verstappen var fljótur í talstöðina til að segja að ef hann hefði ekki farið út af brautinni hefði hann lent í samstuði við Rosberg. Sem er einmitt skilgreiningin á að þvinga einhvern út af. Rosberg hefði átt að beygja fyrr að mati ofanritaðs.

Rosberg tók svipaða línu gegn Hamilton á síðasta hring austurríska kappakstursins og endaði fjórði þar líka. Gæti hugsast að Rosberg tapi einbeitingunni þegar keppnir fara ekki á hans veg? Hann virðist höndla að tapa fyrir Hamilton í tímatökum ágætlega en á erfiðara með að glíma við vandræði í keppnum. Fyrir utan hugbúnaðarvandræði í bílnum. Hann sýndi það í evrópska kappakstrinum að hann kann það betur en Hamilton.

Ferrari bílarnir í Þýskalandi.Vísir/Getty
Er Ferrari í frjálsu falli?

Næstum áratugur er liðinn frá því Ferrari vann titil. Kimi Raikkonen varð heimsmeistari með liðinu árið 2007. Liðið er engu nær því að breyta þeirri stöðu eftir keppni helgarinnar.

Þvert á móti virðist liðið nú orðið eftirbátur Red Bull liðsins í viðbót við að reyna að elta Mercedes. James Allison er hættur sem tæknistjóri, af persónulegum ástæðum. Hann þótti líklegastur til að geta komið Ferrari á vinnandi veg á ný. Óljóst er hvort ráðið verður stórstirni í hans stað en nú sem komið er hefur Ferrari sett Mattia Binotto í hans stað. Binotto stýrði áður vélamálum Ferrari.

Ferrari þarf að rífa sig í gang. Spurningin er hvort Binotto dugi sem fallhlíf til loka tímabilsins og Ferrari steli stóru nafni í vetur eða þrói Binotti í starfinu.

Hamiilton var ökumaður dagsins að mati blaðamanns.Vísir/Getty
Ökumaður dagsins

Lewis Hamilton aðallega vegna þess hve vel hann stýrði keppninni og hvaða merkingu það hefur fyrir hann og titilvonir hans.

Það eru ekki margir sem hefðu getað snúið 43 stiga forskoti jafn hratt við og Hamilton hefur gert. Hann hefur unnið 62 stig á Rosberg síðan eftir spænska kappaksturinn.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg fljótastur á æfingum á Hockenheim

Þýski ökumaðurinn Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir þýska kappaksturinn sem fram fer á Hockenheim brautinni um helgina. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar á báðum æfingum.

Rosberg á ráspól á heimavelli

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól í þýska kappakstrinum á morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton ræsir annar og Daniel Ricciardo á Red Bull verður þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×