Formúla 1

Bílskúrinn: Mögnuð keppni í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes liðið fagnaði og Hamilton var augljóslega létt.
Mercedes liðið fagnaði og Hamilton var augljóslega létt. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í Mónakó, síðasta sunnudag. Red Bull liðið klúðraði keppninni fyrir sínum manni Daniel Ricciardo sem hefði geta komið fyrstur í mark.

Hvernig klúðraði Red Bull nánast unninni keppni, hvernig fór Hamilton að því að vinna og hvað var málið með slakan árangur Kimi Raikkonen? Allt þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Lewis Hamilton í bleytunni í Mónakó.Vísir/Getty
Hamilton hafði það af

Lewis Hamilton var búinn að bogna og bogna allt tímabilið. Hann hafði ekki unnið keppni síðan hann tryggði sér heimsmeistaratitilinn í Austin í Texas í október í fyrra.

Daniel Ricciardo reyndi hvað hann gat að komast fram úr Hamilton eftir að Hamilton náði forystunni en allt kom fyrir ekki.

Nico Rosberg hleypti liðsfélaga sínum, Hamilton fram úr snemma í keppninni. Þjóðverjinn var einfaldlega ekki að finna taktinn á brautinni. Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes sagði eftir keppnina að bremsuvandamál hafi verið að hrjá báða bíla liðsins en hugsanlega hafi Rosberg fundið meira fyrir því.

Hamilton er að því er virðist kominn í sitt gamla horf. Stigamunurinn er orðinn 24 stig, þó enn Rosberg í vil.

Daniel Ricciardo var ekki skemmt.Vísir/Getty
Red Bull ruglið

Daniel Ricciardo, ökumaður Red Bull var vægast sagt drullu fúll eftir keppnina. Hann tók þjónustuhlé og skipti af regndekkjum og yfir á ofurmjúk dekk.

Þjónustulið Red Bull virtist hins vegar alls ekki reiðubúið að taka á móti Ricciardo til að setja hann á ofurmjúk dekk.

Venjulega taka þjónustuhlé í Formúlu 1 um 2,5 til 3 sekúndur. Þetta tók rúmar 13. Ricciardo sagði eftir keppnina að hann hafi verið kallaður inn og að það hafi verið ákvörðun liðsins að taka þjónustuhléið. Hamilton náði forystunni af Ricciardo vegna þjónustuhlésins.

„Þetta var afar augljóst í dag. Þetta gerðist fyrir tveimur vikum og aftur í dag en nú var þetta enn sjáanlegra,“ sagði Ricciardo eftir keppnina. Hann bætti við að hann vissi ekki hvernig framhaldið yrði.

Strax eftir keppnina sagði Ricciardo í talstöðinni við liðið: „Ég vil ekki heyra neinar afsakanir núna. Það er ekkert sem þið getið sagt sem afsakar þetta.“ Ljóst er að Ástralinn síkáti er brjálaður.

Kimi Raikkonen í rigningunni í Mónakó.Vísir/Getty
Er Kimi Raikkonen útbrunninn?

Raikkonen var sjötti í tímatökunni en þurfti að sætta sig við fimms sæta refsingu eftir að skipt var um gírkassa í bíl hans. Raikkonen lenti svo á varnarvegg, braut framvænginn og hætti keppni í kjölfarið.

Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari hefur nú sagt að slakan árangur Raikkonen í Mónakó megi rekja til þess að honum finnist brautin ekki skemmtileg.

„Það þýðir ekkert að kvarta undan frammistöði Kimi, við verðum bara að sætta okkur við það hvernig fór,“ sagði Arrivabene.

Það má velta því upp hvort Raikkonen sé ekki einfaldlega orðinn áhugalaus um Formúlu 1.

Arrivabene segir hins vegar að engar áhyggjur þurfi að hafa af áhuga Raikkonen. „Hann er alltaf að reyna sitt besta og mn halda því áfram út tímabilið,“ sagði liðsstjórinn. Einhverjir kunna að lesa í orð Arrivabene og túlka þau sem svo að Raikkonen fái ekki framlengingu á samningi sínum hjá liðinu. Blaðamanni dettur í hug einn Ástrali sem gæti þegið sæti hjá Ferrari.

Sebastian Vettel taldi að Ferrari hefði átt að geta betur í Mónakó.Vísir/Getty
Floppaði Ferrari í Mónakó?

Sebastian Vettel sagði eftir tímatökuna að han vissi ekki hvað hefði klikkað. Hann sagðist samt viss um að liðið hefði getað náð ráspól. Ferrari hefur enn ekki náð að setja saman heilsteypta keppnishelgi í ár. Ferrari floppaði í Mónakó ef marka má orð Vettel.

Ferrari heldur því statt og stöðugt fram að bíllinn jafnist nánast alveg á við Mercedes bílinn. Framkvæmd liðsins hefur hins verið að klikka. Keppnisáætlanir hafa verið veikasti hlekkur ítalska stórveldisins. Ætli yfirmenn Ferrari séu farnir að kveikja undir sæti liðsstjórans, Arrivabene?

Ferrari gerir miklar kröfur um árangur og það endist enginn lengi í sætinu sínu hjá liðinu ef árangurinn fylgir ekki. Hvert framhaldið verður getur tíminn einn leitt í ljós. Kannski léttir pressunni ef Ferrari tekst að halda haus eina keppnishelgi.

Sergio Perez var kampakátur með þriðja sætið.Vísir/Getty
Ökumaður dagsins

Hamilton og Ricciardo koma sterklega til greina en maðurinn sem varð í þriðja sæti, á Force India bílnum, Sergio Perez hlaut þann heiður að mati kjósenda á opinberri vefsíðu Formúlu 1 (formula1.com).

Það er ekki annað hægt en að vera sammála niðurstöðunni. Þetta var þriðja verðlaunasæti Perez fyrir Force India. Perez ræsti af stað sjöundi en stóðst álagið sem fylgdi rigningunni og þornandi braut og miklum breytileika í aðstæðum.

Perez var alsæll með áragurinn og tileinkaði Vijay Mallya, framkvæmdastjóra Force India. Mallya hefur verið að glíma við lögfræðileg vandamál og er vegna þeirra ekki fær um að mæta á Formúlu 1 keppnir en hefur veitt liðinu mikinn styrk þrátt fyrir allt að sögn Perez.


Tengdar fréttir

Ricciardo: Ég vissi að við ættum að geta þetta

Daniel Ricciardo á Red Bull náði í sinn fyrsta ráspól í dag. Hann var fljótastur í tímatökunni í Mónakó, sem er ein sú mikilvægasta á keppnisdagatalinu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Hamilton fagnaði með Justin Bieber | Sjáðu þáttinn

Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson fara yfir allt það helsta úr viðburðaríkri keppni í Mónakó. Lewis Hamilton kom fyrstur í mark eftir kostnaðarsamt klúður Red Bull liðsins.

Marko: Þetta voru mannleg mistök

Lewis Hamilton ók vel í dag. Hann ræsti þriðji og endaði á að vinna keppnina. Mannleg mistök hjá Red Bull kostuðu Daniel Ricciardo keppnina. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Red Bull brýnir hornin í Mónakó

Lewis Hamilton varð fljótastur á Mercedes á fyrri æfingunni fyrir Mónakó kappaksturinn í gær, Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×