Formúla 1

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Líklega öruggasta ökumanns uppstilling næsta tímabils er Mercedes liðsins.
Líklega öruggasta ökumanns uppstilling næsta tímabils er Mercedes liðsins. Vísir/Getty
Sú er tíðin að Formúlu 1 liðin huga að næsta tímabili. Rykið er farið að setjast eftir stærstu tæknibreytingsar í manna minnum. Lítilla sviftinga er að vænta í goggunarröðinni það sem eftir er af þessu tímabili.

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta? Þessum verður öllu svarað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Daniel Ricciardo hefur látið Sebastian Vettel svitna aðeins á tímabilinu.Vísir/Getty
Hverjir eru með allt sitt á hreinu?

Mercedes og Red Bull munu að öllu óbreyttu halda sömu ökumönnum á næsta tímabili. Deilunum og dramanu á milli Lewis Hamilton og Nico Rosberg er því hvergi nærri lokið.

Ekki er víst að Sebastian Vettel sætti sig lengi við það að hinn ungi Ástrali, Daniel Ricciardo sýni honum ítrekað í tvo heimana. Líklega er stutt í að þolinmæði Þjóðverjans sé á þrotum. Vettel gæti farið heimta meiri athygli eða sérmeðferð frá liðinu.

Kevin Magnussen byrjaði tímabilið með látum.Vísir/Getty
Hverjir hafa nóg að gera?

McLaren liðið hefur ekki samið við sína ökumenn. Hvorki reynsluboltinn Jenson Button né nýliðinn Kevin Magnussen hafa staðfest að þeir verði hjá McLaren á næsta ári.

Button hefur þegar gefið það út að hann hafi ekki áhuga á að keppa í annarri akstursíþrótt en Formúlu 1. Magnussen hefur átt kaflaskipt tímabil, hann byrjaði með látum og náði öðru sæti strax í fyrstu keppni. Hann hefur hins vegar ekki komist á verðlaunapall síðan.

Það er viss óvissa yfir McLaren liðinu á næsta ári. Honda mun skaffa vélar í bíla liðsins. Núna notar liðið Mercedes vélar, sem eru án nokkurs vafa þær bestu sem völ er á. Það eru því stórir skór sem Honda þarf að fylla á næsta tímabili.

Felipe Massa hefur staðið sig vel hjá Williams.Vísir/Getty
Stiklað á stóru

Felipe Massa sem kom til Williams fyrir tímabilið, skrifaði undir margra ára samning þar og er ekki að fara neitt. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas hefur náð athygli stærri liða en þar er ekki pláss fyrir hann. Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff hefur sagt að liðið fylgist grannt með Bottas.

Ferrari hefur nýlega þaggað niður í orðrómi um að ökumenn liðsins séu á förum. Einnig hefur liðið neitað að Pat Fry, tæknistjóra hafi verið sagt upp. Þess má þá geta að Marussia ökumaðurinn Jules Bianchi er farinn að banka á hurðir Ferrari verksmiðjunnar og óska eftir sæti. Hann kemur úr ökumannsskóla Ferrari og þykir því líklegur sem næsti ökumaður liðsins. Það virðist nánast bara vera tímaspursmál hvenær hann ekur fyrir liðið.

Maldonado hefur valdið og lent í talsverðum vandræðum, hann velti t.d. bíl Esteban Gutierrez.Vísir/Getty
Lotus

Liðið hefur átt afleitt tímabil, Romain Grosjean gaf það út nýlega að hann ætlaði að verja sumarfríinu í að hugsa sinn gang. Hann er eflaust að skoða önnur lið en lítið virðist vera um möguleika fyrir þennan hæfileikaríka ökumann.

Pastor Maldonado, hinn ökumaður Lotus liðsins hefur þegar samið við liðið fyrir næsta ár. Mörgum til mikillar udrunar. Sennilega hefur Lotus ekki getað annað, gegni liðsins hefur ekki verið til þess að auka auglýsingatekjur liðsins sem glímir við fjárhagsvandræði. Maldonado fylgir áfram sandur af seðlum, þrátt fyrir að ríkisstjórn Venezúela sem var hans helsti bakhjarl, hafi stöðvað sínar styrkveitingar. Einhverjir hefði fegnir séð á eftir vandræðagemlingnum.

Daniil Kvyat hefur komið skemmtilega á óvart og er ískaldur á brautinni.Vísir/Getty
Toro Rosso

Jean-Eric Vergne er laus undan klóm Red Bull liðsins, sem á Toro Rosso liðið og stýrir þar ökumannsskipan að miklu leyti. Hann fékk ekki tækifæri hjá Red Bull þegar Mark Webber hætti, Ricciardo fékk lausa sætið og Vergne sat eftir hjá litla liðinu. Hann dreymir örugglega um gott sæti hjá McLaren eða Force India. Það er líklega ekki að fara að losna sæti hjá Red Bull á næstu árum.

Max Verstappen hefur fengið sæti Vergne hjá Toro Rosso á næsta tímabili. Verstappen verður þar með yngsti Formúlu 1 ökumaður sögunnar. Hann verður 17 ára þegar hann sest undir stýri í sinni fyrstu keppni, á 18. aldursári.

Daniil Kvyat, liðsfélagi Vergne er á sínu fyrsta ári og þykir hafa sannað sig. Hann hefur ítrekað komist í síðustu lotu tímatökunnar. Hann bætti met Vettel sem yngsti ökumaðurinn til að enda í stigasæti.

Marco Mattiacci var skipt inn fyrir Domenicali sem liðsstjóri Ferrari.Vísir/Getty
Varnaðarorð

Það skal þó haft í huga að í sögulegu samhengi eru liðsstjórar og ökumenn í Formúlu 1 ekki þekktir fyrir að gefa miklar upplýsingar um hvað gerist bak við tjöldin. Skemmst er að minnast þess þegar Stefano Domenicali var látinn fara frá Ferrari. Ferrari neitaði því þangað til búið var að finna annan mann í starfið að Domenicali væri í hættu.


Tengdar fréttir

Williams vill fara að vinna keppnir

Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum.

Mikil vinna framundan hjá Ferrari

Marco Mattiacci, liðsstjóri Ferrari segir að liðsins bíði mikil vinna. Liðið ætli sér aftur á toppinn en muni þurfa að hafa fyrir því.

Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt

Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×