Formúla 1

Bílskúrinn: Atgangurinn í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var að vonum glaður með 25 stigin sem hann náði sér í.
Lewis Hamilton var að vonum glaður með 25 stigin sem hann náði sér í. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes vann austurríska kapaksturinn um helgina. Keppnin var dramatísk svo ekki sé sterkar til orða tekið. Nico Rosberg hefði auðveldlega getað siglt keppninni heim með smá skynssemi.

Hvað kom fyrir hjá Mercedes? Ef ekki hefði sprungið hjá Sebastian Vettel, hvað þá? Hverjum var um að kenna í árekstri Mercedes? Allt þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Alfeiðing árekstursins, Nico Rosberg með brotinn framvæng í fjórða sæti.Vísir/Getty
Mercedes áreksturinn, hvað gerðist?

Nico Rosberg hafði leitt keppnina dágóða stund og á síðasta hring keppninnar lentu Mercedes ökumennirnir í samstuði. Framvængurinn brotnaði af bíl Rosberg, sem haltraði yfir línuna í fjórða sæti.

Rosberg sagði eftir keppnina að hann hefði verið að glíma við bremsubilun sem leiddi til þess að Hamilton tókst að nálgast hann hraðar en ella. Hvort það er satt eða ósatt verður látið kyrrt liggja.

Hamilton kom sér upp að hlið Rosberg á leið inn í beygjuna. Hamilton var á utanverðunni og Rosberg beygði í áttina að honum og tók svo beygjuna einhverjum metrum seinna en venjulega.

Hamilton kennir Rosberg um og Rosberg kennir Hamilton um, sagan endalausa.

Bilið var oft stutt á milli Rosberg og Hamilton. Stundum of stutt.Vísir/Getty
Mercedes áreksturinn, hverjum er um að kenna?

Að mati blaðamanns er engum um að kenna. Rétt eins og í upphafi kappakstursins í Texas í fyrra þar sem Hamilton þröngvaði Rosberg út af brautinni í fyrstu beygju þegar ökumennirnir voru samsíða. Þá snertust ökumennirnir en engum var refsað fyrir það. Sömu sögu má segja frá því í Japan í fyrra, þá beygju tvö á fyrsta hring.

Breytingin núna virðist einungis vera sú að Rosberg beit frá sér en ekki Hamilton. Það má ekki gleymast að Rosberg leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna. Baráttan mun líklega harðna því lengur sem hann leiðir en Hamilton er eflasut staðráðinn í að vinna breska kappaksturinn á Silverstone næstu helgi.

Ofanrituðum þykir harkalegt að refsa Rosberg fyrir að ljúka keppninni á hættulegum bíl en framvængurinn var fastur undir bílnum nokkra metra. Enginn Formúlu 1 ökumaður hefði stoppað þarna í þessum aðstæðum, sérstaklega þar sem baráttan um heimsmeistarakeppnina varð skyndilega enn meira spennandi.

Sebastian Vettel stendur uppúr Ferrari bílnum eftir að dekkið hvellsprakk.Vísir/Getty
Vettel hvellsprengdi, hvað ef ekki?

Sebastian Vettel var á góðri leið með að vinna keppnina þegar hvellsprakk hjá honum. Enn og aftur er Ferrari að lenda í því að vinna ekki keppni.

Honum hefði sennilega tekist að ljúka keppninni með því að taka eitt þjónustuhlé og hann hefði þá endað afar framarlega, sennilega fremstur.

Ferrari hefur ekki enn unnið keppni í ár og stjarnan þeirra, Vettel hefur ekki náð að stinga hinn nánast aldraða, Kimi Raikkonen. Þeir eru nú jafnir að stigum eftir að Raikkonen náði í þriðja sæti um helgina.

Ferrari er undir mikilli pressu heima fyrir, ítalskir blaðamenn láta með Ferrari svona næstum eins og breskir gera með landslið Englands. Finna því allt til foráttu.

Pascal Wehrlein var undir radarnum og ók virkilega vel um helgina.Vísir/getty
Pascal Wehrlein og stigið

Ungstirnið sem varð meistari í DTM í fyrra læddist, aðeins undir radarinn. Hann náði í stig, stig sem er gríðarlega mikilvægt fyrir hann og ferilinn hans. Stigið er þó enn mikilvægara fyrir Manor liðið.

Manor liðið sem áður hér Marussia hefur ekki náð í stig síðan Jules Bianchi heitinn náði í tvö stig fyrir liðið með níunda sætinu hans í Mónakó árið 2014.

Sauber liðið er núna eina stigalausa liðið. Haldist staðan svona út tímabilið fær Manor umtalsvert meira verðlaunafé en Sauber, bara fyrir það að ná einu stig.

Wehrlein er á mála hjá Mercedes, hann er á láni hjá Manor, gegn því að veita honum sæti fær Mnaor afslátt af Mercedes vélum.

Það er eiginlega bara tímaspursmál hvenær Wehrlein fær sæti hjá Mercedes. Kannski verður honum skipt inn fyrir annan núverandi ökumanna til að minnka spennuna. Það er þó ólíklegt eins og staðan er núna.

Max Verstappen í ekta austurrískum „lederhosen“ yfir keppnisgallan. Raunar er þetta bara mynd af lederhosen á gallanum.Vísir/Getty
Ökumaður dagsins

Max Verstappen, ökumaður Red Bull hlýtur heiðurinn að vera útnefndur ökumaður dagsins í austurríska kappakstrinum. Ástæðan er einföld, hann ræsti áttundi en endaði annar.

Verstappen sýndi frábær tilþrif á brautinni. Honum tókst að taka fram úr á furðulegustu stöðum og endaði ofar er liðsfélagi sinn, Daniel Ricciardo. Verstappen er núna einungis 16 stigum á eftir Ricciardo en Verstappen hefur einungis ekið fimm keppnir í sama bíl. Þar áður ók Verstappen Toro Rosso bílnum sem Daniil Kvyat ekur nú.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Austurríki

Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. Annar varð Nico Rosberg og Nico Hulkenberg varð þriðji á Force India.

Lewis Hamilton vann í Austurríki

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark eftir dramatískan lokahring. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen varð þriðji á Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×