Golf

Billy Hurley efstur á CIMB Classic eftir tvo hringi

Sergio Garcia er í toppbaráttunni í Kuala Lumpur
Sergio Garcia er í toppbaráttunni í Kuala Lumpur AP
Bandaríkjamaðurinn Billy Hurley kann greinilega vel við sig í Malasíu en hann leiðir á CIMB Classic eftir tvo hringi á tíu höggum undir pari. Landi hans, Kevin Streelman, er í öðru sæti á átta höggum undir pari en skor kylfinga hefur verið óvenju gott á hinum erfiða Kuala Lumpur velli.

Nokkur stór nöfn deila þriðja sætinu á sjö höggum undir pari en þar má helst nefna Sergio Garcia sem er kominn aftur út á golfvöllinn eftir verðskuldað frí eftir Ryder-bikarinn. Þá er sigurvegari síðasta árs, Ryan Moore, einnig á sjö höggum undir pari ásamt Lee Westwood sem fór á kostum á öðrum hring, lék á 65 höggum eða sjö undir pari og fór holu í höggi í þokkabót.

Svíinn Rikard Karlberg sem leiddi mótið eftir fyrsta hring fann heldur betur fyrir pressunni á öðrum degi en hann kom inn á 76 höggum eða fjórum yfir pari. Hann féll því langt niður skortöfluna en hann er jafn í 24. sæti á þremur höggum undir pari ásamt mörgum öðrum kylfingum.

Bæði verður sýnt frá CIMB Classic og BMW Masters sem er eitt stærsta mót ársins á Erópumótaröðinni á Golfstöðinni um helgina en flestir af bestu kylfingum heims eru skráðir til leiks í öðru hvoru mótinu.

Eftir tvo hringi á BMW Masters sem fram fer í Kína er hinn högglangi Nicolas Colsaerts frá Belgíu í forystunni en hann er á 14 höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×