Innlent

Bíll valt í Ártúnsbrekku

Sylvía Hall skrifar
Samkvæmt slökkviliðinu urðu engin slys á fólki.
Samkvæmt slökkviliðinu urðu engin slys á fólki. Vísir/Vilhelm
Bílvelta varð í Ártúnsbrekku um tíuleytið í kvöld. Samkvæmt slökkviliðinu urðu engin slys á fólki og voru viðbragðsaðilar mættir á staðinn nú skömmu eftir klukkan tíu.

Samkvæmt sjónarvotti var þó nokkur viðbúnaður á slysstað, en að sögn slökkviliðsins er búið að afboða auka sjúkrabíl á vettvang.

Veginum hefur verið lokað í átt að Grafarvogi á meðan viðbragðsaðilar eru að störfum á vettvangi.

Uppfært klukkan 00:04:

Opnað hefur verið fyrir umferð um Ártúnsbrekku á ný.

Lögregla hefur lokað veginum í átt að Grafarvogi.Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×