Innlent

Bíll valt á Fjarðarheiði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Ökumaður lenti í vandræðum á Fjarðarheiði með þeim afleiðingum að bíll hennar skautaði útaf veginum og valt.

Þetta staðfestir lögreglan á Egilsstöðum en leiðinleg færð er yfir heiðina og töluvert er um snjó og hálku á veginum.

Ökumaðurinn var ein í bílnum og slasaðist hún ekki. Bíllinn hefur nú verið fjarlægður með kranabíl og er hann mikið skemmdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×