Enski boltinn

Bilic fær tvo leiki í viðbót

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bilic gæti misst starfið um næstu helgi.
Bilic gæti misst starfið um næstu helgi. vísir/getty
Það er búið að vera mjög heitt undir Slaven Bilic, stjóra West Ham, í vetur og margir héldu að hann myndi fá að fjúka eftir neyðarlegt 3-0 tap gegn nýliðum Brighton á föstudag.

West Ham er í bullandi fallbaráttu og árangurinn langt undir væntingum.

Eigendur West Ham hafa ákveðið að standa aðeins lengur með Bilic. Í það minnsta í næstu tveimur leikjum liðsins.

„Ég ætla ekkert að hlaupa í felur. Þessi árangur er á mína ábyrgð og það er undir stjórninni komið hvað þeir vilja gera,“ sagði Bilic eftir tapið gegn Brighton.

Leikirnir tveir sem Bilic fær til þess að bjarga starfi sínu eru á útivelli gegn Tottenham í deildabikarnum og gegn Crystal Palace í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×