Samkvæmt þýska dagblaðinu Bild mun Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri semja við þýska stórliðið Bayern München í vikunni.
Shaqiri er á mála hjá Basel sem mætir einmitt Bayern í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Hann þykir einn efnilegasti knattspyrnumaður Evrópu og sérstaklega hættulegur spyrnumaður.
Hann sló í gegn með Sviss á EM U-21 landsliða í Danmörku í sumar og er þegar orðinn lykilmaður hjá Basel sem og svissneska landsliðinu.
Shaqiri myndi ganga til liðs við Bayern í sumar og samkvæmt Bild gildir samningurinn til 2016. Fullyrt er að umboðsmaður hans var í München í gær til að ganga frá samkomulaginu.