Fótbolti

Bild: Er Jürgen Klopp að þjálfa á Íslandi?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jürgen Klopp og Rúnar Páll Sigmundsson.
Jürgen Klopp og Rúnar Páll Sigmundsson. Vísir/Daníel/Getty
„Hefur Jürgen Klopp fundið sér nýtt félag? Á Íslandi?“ segir í frétt sem birtist á heimasíðu þýska dagblaðsins Bild.

Bild slær því upp að Klopp og Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, séu nauðalíkir en það hafa knattspyrnuáhugamenn á Íslandi lengi vitað.

Rúnar Páll var að stýra sínum mönnum gegn Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og var spurður út í líkindi sín við Klopp á blaðamannafundi fyrir leikinn. Þar játti hann því að það væri líkindi með honum og Klopp.

„Sigmundsson er með skegg, gleraugu og sömu hárgreiðslu. Það er ekki hægt að líkjast Klopp meira,“ sagði í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×