Innlent

Bílbruni á Arnarnesvegi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bíllinn varð fljótt alelda en slökkiliði gekk vel að ráða niðurögum eldsins.
Bíllinn varð fljótt alelda en slökkiliði gekk vel að ráða niðurögum eldsins. Aðsent
Bíll varð alelda við Salahverfið á áttunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gekk vel að slökkva eldinn en slökkviliðið er enn að störfum á vettvangi. Bíllinn er staðsettur í vegarkanti.

Enginn slasaðist í brunanum og bílstjórinn náði að komast út úr bílnum áður en hann varð alelda. Ekki fengust upplýsingar um það hvort fleiri hefðu verið í bílnum þegar eldurinn kom upp. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru eldsupptök ókunn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×