Bílar

Bílaútflutningur 10% meiri í Bretlandi þrátt fyrir Brexit

Finnur Thorlacius skrifar
Fjölbreytt bílaflóra sem framleidd er í Bretlandi.
Fjölbreytt bílaflóra sem framleidd er í Bretlandi.
Það kemur ef til vill á óvart að mikill vöxtur var í bílaútflutningi frá Bretlandi í júní þvert á spár manna vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Vöxturinn nam 10,4% og voru 158.641 nýir bílar fluttir út og um helmingur þeirra til annarra Evrópulanda.

Það sem skýrir þessa miklu sölu er mikil eftirspurn í Evrópu þessa dagana, það að Bretar njóta enn skattfríðinda sem meðlimur í Evrópusambandinu og miklar fjárfestingar bílaframleiðenda í Bretlandi á undanförnum árum.

Eðlilegt má teljast að vel gangi áfram að selja bíla frá Bretlandi á meðan tollfríðindi Evrópusambandsins eru enn við líði, en þeir bílaframleiðendur sem eru með verksmiðjur í Bretlandi eru uggandi yfir því hvað bíður þeirra eftir að Bretland er formlega komið úr Evrópusambandinu.

Bílasala í Bretlandi hefur á síðustu árum verið með miklum ágætum, en í fyrsta sinn í langan tíma minnkaði hún í júni frá sama mánuði árið áður og er óvissunni í kjölfar Brexit kennt um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×