Innlent

Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngunum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Hvalfjarðargöngum.
Frá Hvalfjarðargöngum. vísir/pjetur
Húsbíll bilaði í Hvalfjarðargöngunum um tvöleytið í dag. Loka þurfti göngunum í 5-10 mínútur vegna þessa á meðan bíllinn var dreginn í burtu en smá reyk lagði frá bílnum vegna bilunarinnar.

Engin hætta var þó á ferðum samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvilið og lögregla voru lögð af stað en sneru við þegar í ljós kom að ekki var um neinn eld að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×