Enski boltinn

Bikarævintýri Jóns Daða og félaga á enda | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði og John Terry í hálfgerðum faðmlögum.
Jón Daði og John Terry í hálfgerðum faðmlögum. vísir/getty
Chelsea er komið í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir 0-2 sigur á Wolves á Molineux.

Bikarævintýri Jóns Daða Böðvarssonar og félaga er því lokið en þeir slóguúrvalsdeildarliðin Stoke City og Liverpool úr leik á leið sinni í 16-liða úrslitin.

Jón Daði var í byrjunarliði Wolves og lék fyrstu 83 mínútur leiksins.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 65. mínútu kom Pedro Rodríguez Chelsea yfir með skalla eftir laglega sókn og fyrirgjöf Willians.

Það var svo Diego Costa sem gulltryggði sigur Chelsea þegar hann skoraði annað mark liðsins mínútu fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×