Innlent

Biggi lögga í einni hressustu strætóferð sögunnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Biggi lögga og glöðu farþegarnir.
Biggi lögga og glöðu farþegarnir.
Biggi lögga hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlunum að undanförnu og hefur nú birt nýtt myndband þar sem hann er þátttakandi í einni hressustu strætóferð sögunnar.

Myndbandið birtist á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er til þess að hvetja fólk til þess að taka strætó í miðbæinn á Menningarnótt sem fer fram á laugardagskvöld.

Myndbandið endar á skemmtilegan hátt. Lesendur geta horft á myndbandið hér að neðan. Með því birti lögreglan tíu atriði til að hafa í huga á Menningarnótt:

1. Brosum eins mikið og við getum.

2. Tökum strætó. Það kostar ekkert og er miklu þægilegra. Án gríns.

3. Ef við komum á bíl skulum við leggja í bílastæði. Sá fyrsti sem ákveður að leggja upp á einhverjum grasbala er ekki gæddur neinum töfrum sem munu breyta grasbalanum í bílastæði fyrir alla hina. Leyfum honum bara að fá sína sekt í friði og finnum alvöru bílastæði.

4. Ekki pirrast út af lokununum. Þær eru fyrir okkur. Ef þær væru ekki, þá fyrst færi allt í rugl. Lokanirnar eru líka risastórt öryggisatriði. Það er frábært. Húrra fyrir lokunum!

5. Syngjum við hvert tækifæri.

6. Menningarnótt er fjölskylduskemmtun af dýrari gerðinni. Notum tækifærið og komum saman í miðbæinn, verum saman allan tímann og förum saman. Syngjandi í strætó.

7. Ekki vera þessi fulli sem fjölskyldurnar taka stóran sveig framhjá. Það er ekki töff.

8. Ekki pirrast út í þá sem eru að vinna við lokanirnar. Þeir eru bara að vinna vinnuna sína. Heilsum þeim frekar og gefum þeim „high five“. Þeir væru pottþétt alveg til í að vera á röltinu með sinni fjölskyldu.

9. Búum til góðar minninga fyrir okkur sjálf og jákvæðar fréttir af menningarnóttinni.

10. Skemmtum okkur ótrúlega vel.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×