Lífið

Biggi Lögga hitti dreng með kannabisolíu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Biggi lögga segir strákinn hafa lært að búa til kannabisolíuna af íslenskum fréttaþætti.
Biggi lögga segir strákinn hafa lært að búa til kannabisolíuna af íslenskum fréttaþætti. mynd/úr myndbandi birgis
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi Lögga, segist hafa séð margar skaðlegar afleiðingar af notkun kannabisefna. Þetta kemur fram í skrifum hans á Facebook-síðu hans, en hann ritaði um málið í dag.

„Í gær ræddi ég við dreng sem var með stóra krukku af einhverju sem hann kallaði kannabisolíu," segir Biggi og heldur áfram:

„Þetta var einhverskonar þykkni, búið til úr kanabis og minnti mann á grænt illa lyktandi hnetusmjör. Hann útskýrði fyrir mér hvernig þetta væri gert og hvernig þetta væri notað. Hann sagði þetta „algjöra snilld“ og að „allir væru að gera þetta núna". Síðan sagði hann mér að hann hefði lært að gera þetta í íslenskum fréttaþætti."

Biggi segist skilja vel umræðuna um lögleiðingu kannabiss. En hann virðist samt sem áður mótfallinn henni, án þess að segja það hreint út. „Sama hvað hver segir um skaðleysi kannabisefna þá hef ég bara persónulega séð of margar skaðlega afleiðingar. Það sem ég óttast einna mest í þessari umræðu allri er upphafning þessara efna og viðhorf samfélagsins til þeirra. Það er eitt að vilja hjálpa fíklum í stað þess að fangelsa, en það er annað að vilja framleiða þá."


Tengdar fréttir

Greinin sem má ekki skrifa

Þetta sýnir kannski að þessi mál geta oft verið flókin og erfið en við megum ekki festa okkur á einhverjum stað þar sem ekki er leyfilegt að ræða þau frá fleiri hliðum en einni.

Biggi lögga gerir allt brjálað

Grein sem Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður birti á Vísi í síðustu viku hefur vakið hörð viðbrögð. Vísir fer yfir málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×