Innlent

Bifhjólamanninum enn haldið sofandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Manninum er enn haldið sofandi í öndunarvél.
Manninum er enn haldið sofandi í öndunarvél.
Manninum sem lenti í bifhjólaslysi við Hvítársíðu í Borgarfirði síðastliðinn mánudag er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn missti stjórn á bifhjólinu þegar hann ók eftir holóttum malarvegi um Hvítarsíðu. Kona mannsins var farþegi á hjólinu en hún slapp án alvarlegra meiðsla.

Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður, var endurlífgaður á vettvangi en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þau á sjúkrahús í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×