Handbolti

Bielecki skaut Króata í kaf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pólska handboltalandsliðið skreið í átta liða úrslit á ÓL en mun engu að síður spila um verðlaun á leikunum.

Pólverjar unnu nefnilega þriggja marka sigur, 30-27, á Króötum í síðasta leik átta liða úrslitanna í nótt.

Karol Bielecki átti ótrúlegan leik í liði Póllands. Skoraði tólf mörk í fimmtán skotum. Óstöðvandi. Krzysztof Lijewski einnig magnaður með sjö mörk í sjö skotum.

Piotr Wyszomirski var gríðarlega öflugur í marki Pólverja. Varði 15 skot og var með 48 prósent markvörslu.

Luka Stepancci og Ivan Cupic bestir í liði Króata en báðir skoruðu sjö mörk. Markvarslan var léleg en markverðir Króata vörðu aðeins átta skot.

Pólland mun því mæta Dönum í undanúrslitunum en í hinum undanúrslitaleiknum spila Þýskaland og Frakkland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×