Lífið

Bieber tekinn hálstaki á skemmtistað: Slökkti í sígarettu á handlegg Post Malone - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá atvikið en neðst á myndinni má meðal annars sjá Draymond Green, leikmann Golden State Warriors, í NBA-deildinni.
Hér má sjá atvikið en neðst á myndinni má meðal annars sjá Draymond Green, leikmann Golden State Warriors, í NBA-deildinni. Mynd/TMZ
Justin Bieber hefur í gegnum tíðina verið duglegur að koma sér í fjölmiðla og þá oft fyrir atvik sem hann er líklega ekki mjög stoltur af. Eitt slíkt atvik átti sér stað á skemmtistað í Houston þegar hann var mættur til að styðja við bakið á vini sínum, rapparanum Post Malone.

Bieber stóð við hliðin á honum þegar Malone flutti eitt af sínu frægu lögum og tók upp á því að slökkva í sígarettu á hendinni hans. Malone kippti sér ekki upp við þetta og kláraði lagið eins og fagmaður.

Hann tók greinilega eftir þessu því eftir flutninginn tók hann Bieber hálstaki og þurftu vinir þeirra að stíga þá í sundur. Eins og þekkist vel í nútímasamfélagi, þá voru snjallsímar útum allt og náðist myndband af því þegar Bieber setur sígarettu í handlegginn á Malone og einnig náðist ljósmynd af hálstakinu.

Post Malone hefur verið að hita upp fyrir Justin Bieber á tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin og eru þeir góðir vinir. Eins og alþjóð veit mun Justin Bieber koma fram á tvennum tónleikum á í Kórnum í Kópavogi í september.

 


Tengdar fréttir

Miðasalan á Justin Bieber hafin

Miðasalan á aukatónleika Justin Bieber er hafin og hefur verið hleypt inn í stafræna röð í gegnum miðasölukerfi Tix.is. Tónleikarnir fara fram þann 8. september






Fleiri fréttir

Sjá meira


×