Lífið

Bieber sagði aðdáendum sínum að þegja þar sem öskur þeirra væru viðbjóðsleg - Myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frá tónleikunum í Kórnum í september.
Frá tónleikunum í Kórnum í september. Vísir/Hanna
Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber heldur áfram á tónleikaferð sinni um Evrópu um þessar mundir. Hann byrjaði túrinn hér á Ísland þegar hann hélt tvenna tónaleika í Kórnum í september.

Bieber hefur verið eitthvað pirraður á tónleikaferðalaginu þar sem hann er að fylgja eftir nýjasta diski sínum Purpose.

Á mánudagskvöldið kom Bieber fram í Birminham og var hann greinilega illa fyrir kallaður. Poppstjarnan bað aðdáendur sína um að hætta að öskra þar sem öskur þeirra væri viðbjóðslegt.

Hér að neðan má sjá myndbandsupptökur af atvikinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×