Lífið

Bieber og Corden klæddu hvorn annan upp - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Útkoman nokkuð vel heppnuð.
Útkoman nokkuð vel heppnuð. vísir
James Corden og Justin Bieber  fóru aftur á rúntinn um Los Angeles á dögunum en þetta er í annað sinn sem Íslandsvinurinn skellir sér í bíltúr með þessum breska þáttastjórnanda.

Corden stýrir þættinum The Late Late Show vestanhafs en þeir félagarnir keyrðu um saman og sungu nokkur vel valinn lög.

Einnig skelltu þér sér í fataverslun og fengu að klæða hvorn annan upp með stórkostlegri útkomu. Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband sem milljónir hafa nú séð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×