Lífið

Bieber mætti ekki í humarinn og nautalundirnar

Jakob Bjarnar skrifar
Bieber er óútreiknanlegur og er erfitt fyrir skipuleggjendur dvalar hans hér á Íslandi að sjá fyrir óskir hans. En, þeim ber að mæta þegar ofurstjörnur á borð við poppstjörnuna Bieber eru annars vegar.
Bieber er óútreiknanlegur og er erfitt fyrir skipuleggjendur dvalar hans hér á Íslandi að sjá fyrir óskir hans. En, þeim ber að mæta þegar ofurstjörnur á borð við poppstjörnuna Bieber eru annars vegar. visir/vilhelm
Gert hafði verið ráð fyrir því að poppstjarnan Justin Bieber og fylgdarlið myndi mæta til veislu í nótt, í náttverð sem fram hafði verið reiddur, að loknum tónleikum í gær þar sem hluti fylgdarliðs hans dvelur, að Hótel Grímsborgum. Þar hafði verið, samkvæmt óskum Biebers, verið eldaður dýrindis humar og svo nautalundir í aðalrétt. En, þegar til kastanna kom mætti stjarnan ekki, heldur einungis tæplega 20 manns sem tilheyra liði hans.

Ef að líkum lætur hefur veislukosturinn ekki freistað hans um of en í einkaviðtali Fréttablaðsins við stjörnuna kemur fram að hans uppáhalds matur er Spaghetti Bolognese. Fram hefur komið að Bieber tók Skautahöllina í Laugardal á leigu í fyrrakvöld sem varð til þess að nokkrir ungir listdansarar á skautum misstu æfingatíma sinn.

Samkvæmt heimildum Vísis voru umræddir dansarar ekkert að æsa sig yfir því að gefa eftir tíma sinn fyrir Bieber. Þegar til kastanna kom mætti Bieber hins vegar ekki.

Óútreiknanlegur í Grímsnesinu

Justin Bieber sjálfur og hans nánustu aðstandendur dvelja í öðru húsi í grennd við Hótel Grímsborgir og ef að líkum lætur eru ljósmyndarar sem leggja uppúr því að ná myndum af ofurstjörnum á því svæði með aðdráttarlinsur sínar.

Samkvæmt heimildum Vísis eru þeir sem skipuleggja dvöl Biebers farnir að reita hár sitt og skegg því stjarnan er óútreiknanleg og hefur reynst erfitt að skipuleggja gæslu og annað sem nauðsynlegt er talið að sé til staðar þegar ein helsta poppstjarna heims er annars vegar.

Langar á bretti á jökli

Þannig var Bieber að velta því fyrir sér í gær að fara upp á jökul í dag, en eins og þeir vita sem fylgdust með komu hans með einkaþotu til landsins, hafði hann snjóbretti með í farteskinu. En, Bieber vildi hins vegar vita fyrir víst að jökullinn væri öruggur og voru því tveir menn ræstir út í nótt og sendir þar upp eftir til að huga að aðstæðum.

Gríðarleg stemmning var á tónleikunum sem haldnir voru í Kórnum í gærkvöldi, um 20 þúsund manns, mest ungmenni, sáu glæsilegt sjónarspil og er óhætt að segja að Bieber-brjálæði ríki nú á Íslandi. Mikil eftirvænting ríkir vegna tónleikana sem verða í kvöld og þeir allra hörðustu ætla að mæta á báða tónleikana.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×