Lífið

Bieber kýldi ljósmyndara

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
mynd/ramey photo
Poppprinsinn Justin Bieber borðaði kvöldmat með raunveruleikastjörnunni Kendall Jenner í París í gærkvöldi.

Eitthvað þreyttist söngvarinn á athyglinni sem hann fékk en meðfylgjandi mynd náðist af honum þegar hann reyndi að komast út af veitingastaðnum. Á móti honum tók ljósmyndaraflóð og kýldi Bieber einn ljósmyndaranna.

Ekki er ljóst hvað olli því að Bieber kýldi ljósmyndarann en söngvarinn hefur notið lífsins í París síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×