Innlent

Biður neytendur að gæta sín á Costco-áhrifunum

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Costco í Kauptúni.
Frá Costco í Kauptúni. Vísir/Eyþór
„Vatn er frítt á Íslandi, það er enginn að græða þarna,“ segir Rakel Garðarsdóttir hjá samtökunum Vakandi, sem hafa það að markmiði að auka vitundarvakningu um sóun matvæla, um þær fregnir að bandaríski verslunarrisinn Costco selji hálfan lítra af ókolsýrðu vatni á ellefu krónur hér á landi.

Það er fimm krónum lægra en sem nemur skilagjaldi plastflöskunnar en bent hefur verið á að Costco þurfi að greiða sextán króna skilagjaldið til ríkissjóðs þegar vatnið er flutt til landsins.

„Við erum með frábært íslenskt vatn og þurfum ekki á öllu þessu vatni að halda,“ segir Rakel.

Rakel Garðarsdóttir hjá samtökunum Vakandi.Vísir/Valgarður
Hún segir ýmislegt jákvætt við komu Costco til landsins. Vonast hún til að mynda til þess að það muni leiða til lægra vöruverðs og þá býður verslunarrisinn viðskiptavinum sínum ekki upp á plastpoka.

„Ég hefði frekar viljað sjá þróun á Íslandi í átt að kjörbúðum. Þannig að þú getir farið út í búð og ef þig vantar bara fimmtíu gramma nautasteik, þá færðu bara 50 gramma nautasteik.“

Hún hvetur fólk til þess að fara varlega þegar kemur að Costco, því þar leynist gyllitilboð.

„Það eru þessi Costco-áhrif sem eru kennd í markaðsfræðinni. Þessi hugsun að þú farir inn í verslun, jafnvel bara til að skoða, en þú kemur út úr búðinni með eitthvað sem þig vantaði ekki. Þannig vilja flestar búðir hafa þetta, að við kaupum eitthvað sem við þurfum ekki. Neytandinn græðir yfirleitt ekki á tilboðum á borð við: Kauptu tvo og fáðu þriðja frítt.“

Hún hvetur fólk til að kaupa ekki eitthvað í Costco sem það þarf ekki, af því það var einfaldlega svo ódýrt. „Það er svo mikil sóun í því. Þetta er allt of mikið magn og allt of mikið af umbúðum. Fyrir fjögurra manna fjölskyldu er þetta ekki pakkastærðir sem við þurfum. Þetta hentar mögulega þeim sem eru að fara halda veislur, en að vera meðvitaður um að þó þetta virki æðislega ódýrt, að kaupa ekki ef maður er ekki að fara að nota það.“


Tengdar fréttir

Costco býður ekki alltaf besta verðið

Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið ætla að veita Costco verðsamkeppni á raftækjamarkaði. Matarinnkaup hagstæð í Costco en í mörgum tilfellum þarf að kaupa í miklu magni. Bjóða tískuföt á lægra verði en áður þekktist.

Vatn Costco ódýrara en skilagjald flöskunnar

Costco í Garðabæ selur hálfan lítra af vatni í plastflöskum á ellefu krónur stykkið. Skilagjald drykkjarumbúða er 16 krónur á flösku og því fimm krónum hærra en verðlagning Costco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×