Bíó og sjónvarp

Biður foreldra afsökunar á Let It Go

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jennifer með dóttur sinni Agöthu.
Jennifer með dóttur sinni Agöthu.
Jennifer Lee, leikstjóri Disney-teiknimyndarinnar Frozen, segir í viðtali við Hollywood Reporter að hún sé byrjuð að biðja foreldra afsökunar á lagi myndarinnar Let It Go en á íslensku heitir lagið Þetta er nóg.

„Fyrir ári síðan hitti ég fólk sem sagðist elska lögin þegar það fattaði hver ég var. Sagðist syngja þau öllum stundum,“ segir Jennifer í viðtalinu. Nú heyri hún hins vegar það sama ári síðar og sér sig knúna til að biðja þetta fólk afsökunar.

„Ég er búin að breyta svarinu mínu úr: Takk í: Fyrirgefið!“

Frozen var frumsýnd í nóvember á síðasta ári og fékk Let It Go Óskarsverðlaun sem besta lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×