Leikjavísir

Biðin eftir góðum handboltaleik heldur áfram

Samúel Karl Ólason skrifar
Graffík Handball 16 er ekki upp á marga fiska.
Graffík Handball 16 er ekki upp á marga fiska. Mynd/Bigben
Til er fólk sem hefur lengi beðið eftir góðum handboltaleik. Skömmu fyrir áramót kom út leikurinn Handball 16 sem framleiddur er af franska fyrirtækinu Bigben Interactive. Nú vill svo til að Handball 16 er ekki góður handboltaleikur, en hann gæti verið skref í rétt átt.

Evrópumótið er enn yfirstandandi, þrátt fyrir að Ísland sé úr leik, og mikið að gerast í handboltaheiminum. Markaðurinn fyrir handboltaleiki getur þó varla verið stór og því ólíklegt að stórir framleiðendur væru til í að setja mikla fjármuni í að þróa þá og framleiða. Bigben er ekki stór framleiðandi og greinilegt er að þeir hafi ekki hent fjalli af peningum í þennan leik.

Grafíkin er ekki upp á marga fiska og lýsendurnir eru daufir og oft á tíðum eins og einhvers konar símsvari. „Vel gert hjá....Kiel.“ Nöfn á liðum og leikmönnum segja þeir oft í öðrum tóni en aðra hluta setninga. Það eru þó ekki einu gallar leiksins, því miður, en meira um það síðar.

Í Handball 16 eru 62 lið í tveimur efstu deildunum í Danmörku, Frakklandi, Spáni og Þýskalandi og raunverulegir leikmenn (já, Íslendingarnir líka). Þó eru bara þrír leikvangar í leiknum.

Hægt er að spila leikinn á netinu, en verið tilbúin til að bíða í þó nokkurn tíma eftir mótherja. Það er einnig hægt að spila einn á einn, á móti tölvunni eða á móti vini með tvær fjarstýringar. Þar að auki er hægt að spila svokallað Career mode, þar sem spilarar búa til leikmann og byggja hann upp sem stórstjörnu.

Ekki er hægt að finna neinn stað í leiknum, þar sem farið er yfir hvaða takkar gera hvað og fá sambærilega hjálp um spilun leiksins. Þrátt fyrir það koma þó upp meldingar um hvað einn og einn takki gerir en þrátt fyrir það vaða spilarar áfram í blindni.

Handball 16 býður einungis upp á tvö sjónarhorn, sem snúast eftir því hvort liðið er með boltann. Þegar boltinn fer í gólfið skoppar hann lítið sem ekki neitt og baráttan um dauða bolta er stórfurðuleg. Leikmenn standa í hrúgu yfir boltanum þar til einn vinnur, hinir hlaupa af stað áður en sá sem vann beygir sig rólega eftir boltanum og kastar honum til næsta manns.

Eftir því sem ég best veit eru tveir takkar sem nota á í vörninni. Sama hvorn takkann ýtt er á þá er alltaf dæmt brot og leikmaðurinn rekinn út af í tvær mínútur. Hreyfanleiki leikmanna er ekki góður og því er vörnin tiltölulega erfið og er besta sóknarbragðið oftast að hlaupa í hringi þar til pláss myndast í varnarlínunni.

Tölvugerðir áhorfendur hafa ekki áhuga

Ég tók leikinn með mér á FIFA-kvöld með félögum mínum um helgina til að heyra hvað þeir höfðu um leikinn að segja og sjá hvernig hann félli í kramið.

Elmar vinur minn virtist fanga eitt það raunverulegasta við leikinn og benti á, í meinhæðni, að áhorfendastúkurnar væru yfirleitt bara hálffullar. Tölvugerðir áhorfendur hafa ekki einu sinni áhuga á að fylgjast með leikjunum. Af miklum ákafa við að fá nafns síns einnig getið í dómnum sagði Aron: „Svo er boltinn alltaf svo skrítinn.“

Segja má að honum hafi tekist ætlunarverk sitt, en á röngum forsendum.

Eftir nokkra spilun voru strákarnir þó sammála um að þrátt fyrir hina fjölmörgu galla gæti leikurinn þó verið skemmtilegur á köflum. Þar að auki verða framleiðendur hans að fá aukastig fyrir viðleitnina, en markaðurinn fyrir handboltaleiki er væntanlega ekki beysinn.


Tengdar fréttir

Jólagjafahandbók GameTíví

GameTívídrengirnir Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann, fara yfir hvaða leiki þeir vildu helst sjá í jólapökkunum.

Skemmtileg en þunn Star Wars upplifun

Star Wars Battlefront er fínasta viðbót við hin gríðarlega stóra Star Wars og mun skemmta spilurum vel, í stutta stund.

Eins og endalaus hasarmynd

Það er nánast ómögulegt að taka Just Cause 3 alvarlega en það er svo sem ekki ætlast til þess.

Leikir ársins 2015

Á árinu sem er nýliðið litu fjölmargir stórir leikir dagsins ljós. Hægt er að segja að 2015 hafi verið ár leikjaseríanna þar sem margir af stærstu leikjum ársins voru framhaldsleikir.

Frískað upp á slappa seríu

Assassins Creed Syndicate er níundi leikurinn í seríunni og flytur hana að nýjum hæðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×