Biblían – fjölbreyttar leiðir til lesturs og íhugunar Bergþóra Baldursdóttir skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Biblían, helgirit kristinna manna, er mikil bók sem margir nýta sér í daglegu lífi. Hún er safn trúarrita sem sum eru meira en 2.000 ára gömul en önnur nokkuð yngri. Orð Guðs í Biblíunni færir okkur kærleiksboðskap Jesú Krists, leiðbeinandi siðfræði og veitir styrk, huggun og leiðsögn á lífsins vegi. Það er því dýrmætt að geta lesið í Biblíunni sér til uppbyggingar og góðs. Ég eignaðist mína fyrstu Biblíu árið 1984 er ég brautskráðist sem sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands og föðursystir mín gladdi mig með þessari góðu útskriftargjöf. Þessi gjöf var mér dýrmæt og ég handlék bókina oft. Það liðu hins vegar mörg ár áður en ég varð fyrir alvöru handgengin Biblíunni og dýrmætur boðskapur hennar tók að auðga líf mitt. Það getur krafist leiðsagnar að ná valdi á að lesa sér til uppbyggingar þessa góðu bók og langar mig því að deila með lesendum hvernig það gerðist í mínu lífi. Árið 2000 sótti ég námskeið á vegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar sem reyndist mér gagnlegt í þessu sambandi. Bar það heitið „Lifandi steinar“ og fjallaði um helgihald og hversdagslíf. Á því var m.a. sagt frá ritum Biblíunnar, þátttakendum kennt að fletta upp í henni og þeir fengu tækifæri til að leysa heimaverkefni sem hvöttu til umhugsunar um boðskap gefins biblíutexta. Það var nýtt fyrir mér að vera spurð að því hvernig tiltekinn biblíutexti talaði til mín eða hver mér fyndist boðskapur hans vera. Þarna varð ég handgengin Biblíunni og ígrundunin skerpti á minni persónulegu trú. Skóli Orðsins (LECTIO DIVINA) var annað námskeið sem ég sótti á vegum Leikmannaskólans nokkrum árum seinna. Þar lærði ég að lesa Biblíuna á nýjan hátt. Aðferðin var í fimm þrepum og byggði á að nálgast Biblíuna í stórum eða litlum hópum og í einrúmi. Á fyrsta þrepinu var skapað andrúmsloft kyrrðar og tilbeiðslu, þannig að ró kæmist á skilningarvitin, sem skerpti skilninginn á því sem lesið var. Á öðru þrepinu var valinn biblíutexti lesinn upphátt nokkrum sinnum og spurt um merkingu hans í sögulegu ljósi. Þriðja þrepið fól í sér stund fyrir kyrrð og íhugun. Þátttakendur spurðu sig hvaða merkingu orð Biblíunnar færðu inn í kringumstæður daglegs lífs. Hvað vildi Guð segja þeim? Á fjórða þrepinu var sameinast í bæn, hugsanir og íhuganir lagðar í Drottins hönd. Í bæninni nálguðumst við Jesú, fundum að hann var nálægur og vildi mæta okkur. Í lokin, á fimmta þrepinu, ræddum við saman um biblíutextann. Við gáfum hvert öðru hlutdeild í hugsunum okkar án þess að rökræða eða gagnrýna. Með þessum hætti gátum við komið auga á fleiri fleti á textanum eins misjöfn og við vorum. Að lokum langar mig til að nefna „Biblíuöskjuna“ sem inniheldur 200 spjöld með ritningargreinum úr Biblíunni. Það hefur fært dýrmætt veganesti inn í daglegt líf mitt að draga spjald með orði Guðs úr öskjunni og hefur um leið aukið áhuga minn á lestri Biblíunnar. „Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.“ Sálm. 119:105. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson Skoðun Breiðholt brennur Eðvarð Hilmarsson Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Uppskera að vori Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Er menning stórmál? Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir skrifar Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Leikskólamál eru forgangsmál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hefur allt sem þarf Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju að gera rekstraráætlun? Karl Sólnes Jónsson skrifar Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Mannréttindi sama hvað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson skrifar Skoðun Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar Snæbjörn Brynjarsson skrifar Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar Skoðun „Vitum ekkert hvað við erum að gera“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar
Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun