Innlent

BHM lítur leyfisveitingu sýslumanns alvarlegum augum

Atli Ísleifsson skrifar
Áhrif verkfalla á allt atvinnulífið stigmagnast með hverjum deginum.
Áhrif verkfalla á allt atvinnulífið stigmagnast með hverjum deginum. Vísir/Stefán
Bandalag háskólamanna telur að sýslumaður hafi framkvæmt verkfallsbrot með því að veita sérstök tækifærisleyfi „þrátt fyrir endanlegan úrskurð undanþágunefndar og fyrirliggjandi framkvæmd og lítur málið alvarlegum augum.“

Í fréttatilkynningu frá BHM segir að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi borist umsókn frá Kópavogsbæ um afgreiðslu tveggja tækifærisleyfa hinn 29. apríl síðastliðinn. „Annars vegar var um að ræða tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi  laugardaginn 9. maí í tilefni af árshátíð starfsmanna Kópavogsbæjar en hins vegar tækifærisleyfi vegna stórafmælis Kópavogs hinn 10. maí næstkomandi.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sendir svokallaðri undanþágunefnd sem skipuð er skv. 21. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna beiðni um undanþágu frá verkfalli meðal lögfræðinga hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna beggja umsókna Kópavogsbæjar. Í 20. gr. laganna er kveðið á um að sé verkfall hafið er heimilt að kalla starfsmenn, sem eru í verkfalli, tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi. Það er því hlutverk nefndarinnar  að meta hvort um sé að ræða neyð í skilningi laganna sem þurfi að afstýra í tilgreindu tilviki.

Þann 4. maí sl. barst sýslumanni niðurstaða frá undanþágunefndinni  þar sem honum var tilkynnt um að beiðnin hafi verið tekin til efnislegrar meðferðar. Niðurstaða nefndarinnar var sú að hafna beiðninni og var nefndin einróma í niðurstöðu sinni. Í þessu samhengi má benda á að í nefndinni sitja fulltrúar Stéttarfélags lögfræðinga og ríkisins og eru ákvarðanir nefndarinnar endalegar sbr. 21. gr. laga nr. 94/1986.

Þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu gaf sýslumaður sjálfur út leyfisbréf fyrir báða framangreinda viðburði daginn eftir að honum var birt niðurstaða undanþágunefndarinnar. Í þessu samhengi er jafnframt bent á að í yfirlýsingu frá embætti sem birt er á heimasíðu sýslumannsembættanna (https://www.syslumenn.is/stodflokkar/forsidugreinar/tilkynning-vegna-verkfalla-hja-syslumanninum-a-hofudborgarsvaedinu) kemur fram að tekið sé við umsóknum um gisti- og veitingaleyfi en hvorki  séu ný leyfi gefin út né gildandi leyfi endurnýjuð.

Bandalag háskólamanna telur að sýslumaður hafi framkvæmt verkfallsbrot með því að veita framangreind leyfi þrátt fyrir endanlegan úrskurð undanþágunefndar og fyrirliggjandi framkvæmd og lítur málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Verður í lagi næstu 7 til 10 daga

Verkfallsaðgerðir koma misjafnlega niður á fólki, en bitna bæði á þeim sem eru í verkfalli, viðsemjendum þeirra og svo þeim sem ekki geta annað gert en fylgst með framvindunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×