Glamour

Beyonce söng til móður sinnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Söngkonan Beyoncé kom fram á Grammy verðlaunahátíðinni í gær og var hápunktur kvöldsins. Eftirvæntingin var mikil enda söngkonan nýbúin að tilkynna það eftirminnilega að hún ætti von á tvíburunum með eiginmanni sínum Jay Z. 

Söngkonan tileinkaði flutningin móður sinni, Tinu Knowles, sem deildi með henni sviðinu í nótt er hún flutti lögin Sandcastles og Love Drought af plötunni Lemonade óaðfinnalega. Klædd í gullkjól með gullkórónu í laginu eins og sól minnti Beyoncé einna helst á styttu á sviðinu. 

Beyoncé fór heim með tvenn Grammy-verðlaun í nótt en þær Adele deildu fallegu augnabliki saman þegar sú síðarnefnda tók á móti verðlaunum fyrir plötu ársins. Myndband af því má sjá neðar í fréttinni sem og atriði Beyoncé í heild sinni!





Blue Ivy's out here in a Gucci pantsuit and I still wear sweatpants to class.

A photo posted by Teen Vogue (@teenvogue) on


Tengdar fréttir






×