Glamour

Beyoncé og Lemonade verða að háskólakúrs

Ritstjórn skrifar
Beyoncé gaf út plötuna Lemonade fyrr á árinu.
Beyoncé gaf út plötuna Lemonade fyrr á árinu. Mynd/Skjáskot
Harðir aðdáendur Beyoncé geta nú gengið skrefinu lengra og tekið kúrs sem fjallar um hana og nýjustu plötuna hennar, Lemonade. Kúrsinn verður kenndur við University of Texas í San Antonio. 

Námsgreinin mun bera heitið "Black Women, Beyoncé & Popular Culture" og þar verður aðal fókusinn settur á femínistabaráttu svartra kvenna, hvernig sé hægt að upphefja svartar konur og önnur mál tengd því. Námið mun snúast í kringum plötuna Lemonade þrátt fyrir að annað námsefni verði einnig notað. 

Kúrsinn hefst í haust svo að það er líklega orðið of seint til að skrá sig en aðdáendur geta vonandi sótt um fyrir vorið. 






×