Tónlist

Beyoncé og Kendrick voru mögnuð á BETA

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Beyoncé og Kendrick Lamar voru rennandi blaut eftir atriðið á sunnudag.
Beyoncé og Kendrick Lamar voru rennandi blaut eftir atriðið á sunnudag. Vísir/Getty
Það ætlaði allt um koll að keyra í fyrradag þegar Beyoncé opnaði Black Entertainment Television Awards (eða BETA) með laginu Freedom af meistaraverki hennar Lemonade.

Gífurlegur metnaður var lagður í atriðið og var útgáfa lagsins töluvert lengri en sú sem aðdáendur þekkja af plötunni. Já, og sjálfur Kendrick Lamar, birtist skyndilega upp úr gólfinu og lét rímið flæða eins og enginn væri morgundagurinn.

Sviðið var allt þakið vatni sem Beyoncé, dansarar og Kendrick Lamar gengu í því og busluðu sín á milli.

Prince minnst í tónum

Einnig var tónlistarmanninum Prince, sem lést fyrr á þessu ári, gert hátt undir höfði. Listamenn á borð við Erykah Badu, Bilal, Stevie Wonder, Jennifer Hudson, Sheila E og Janelle Monáe fluttu lög meistarans.

Drake og Beyoncé unnu flest verðlaun á hátíðinni en einnig vann kvikmyndin Straight Outta Compton til nokkra verðlauna.

Magnað atriði Beyoncé og Kendrick Lamar má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Topp 50: Kendrick Lamar á plötu ársins

Rolling Stone tímaritið hefur valið 50 bestu plötur ársins 2015 en þar má sjá Björk Guðmundsdóttir í 42. sæti með plötuna sína Vulnicura.

Drottningin blandar límonaði

Beyoncé kom aðdáendum sínum á óvart á laugardaginn en hún gaf óvænt út plötuna Lemonade sama dag og hún frumsýndi samnefnda mynd á HBO. Platan hefur vakið töluverða athygli, aðallega vegna opinskárra texta um hjónabandsvandræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×