Glamour

Beyonce og Jay-Z gefa út lag saman

Ritstjórn skrifar
Bey og Jay hafa gefið út nokkra slagara saman.
Bey og Jay hafa gefið út nokkra slagara saman. Mynd/Getty
Í kjölfar Grammy verðlaunanna í nótt gáfu ofurparið Beyonce og Jay-Z út lag saman. Lagið er gert í samstarfi við plötusnúðinn og upptökustjórann vinsæla DJ Khaled. Þetta er fyrsta lagið sem hjónin gefa út saman frá því að Drunk In Love kom út árið 2013. Þau hafa þó gefið út þónokkra slagara í gegnum tíðina eins og Crazy In Love, Deja Vu og On The Run. 

Samkvæmt tilkynningu frá DJ Khaled er þetta fyrsta lagið af nýjustu plötu hans, Grateful. Þar segir einnig að nokkra mánaða sonur Khaled, Asahd, hafi komið að framleiðslu lagsins.

Hægt er að heyra brot úr laginu hér fyrir neðan en það má hlusta á það í heild sinni á tónlistarveitunni Tidal. 






×